[00:33] Æ, ég ætlaði bara að segja að ég væri farinn til Finnlands að eyða tíma og peningum. Annars líður mér ágætlega sko.
Annars er það helst í fréttum að heimasíða nemendaráðs FAS er alveg að koma upp. En í forritun & hönnun þeirrar síðu hef ég eytt slatta tíma í. Skulum bara vona að hún komi til góðra nota fyrir skólann og samfélagið í heild sinni.
Uppá skrifborðinu er ég síðan með nokkur verkefni sem þarf að hrinda í framkvæmd, sparkið í mig.
np: "Eluvium - Copia (the album)", "Fréderic Chopin - allt", "Okkervil River - The Stage Names (the album)", "The Beatles - Real Love", "The One AM Radio - In The Time We've Got", "Caribou - Andorra (the album)", "Electric Light Orchestra - allt discographyið", etc, etc, etc.
PS: Er búinn að hlusta á 49,500 lög síðan ég fékk mér
last.fm accountinn minn, sumsé næstum 50 þúsund (fattaðirðu það?). En þetta mun gera einhver 62 lög á dag, í winamp. ;s
PS2: Er kominn með eitthvað tónlistar myspace dæmi sem er að vísu vitavonlaust, ef ykkur finnst gaman að hlusta á mig spila Nocturnes eftir Chopin eða eitthvað frumsamið lag megiði samt
kíkja hingað. Mun eflaust henda einhverju fleiru þarna inn með tímanum.
PS3: Vita ekki örugglega allir sem lesa þetta hvað "The X-Files" er/var?
[19:38] Ætli það sé ekki kominn tími á eins og eitt blogg, svona í ljósi þess að skólinn er hafinn og sumarið á enda, aðallega þó vegna þess að mér leiðist alveg últra mikið. Allir vinir mínir ku-u vera að spila leik á Djúpavogi og ég komst ekki með vegna meiðsla sem ég hlaut í hjólaslysi í dag, reyndar líka vegna þess að ég nennti ekki á Djúpavog en það er önnur saga.
Allavegana þá er skólinn byrjaður og þar er ég skráður í 28 einingar en þrátt fyrir það er ég í heilum 12 götum yfir vikuna. Ég hef mest verið í cirka 3 götum yfir vikuna hingað til (þá meina ég síðan ég byrjaði í fyrsta bekk), þannig að þetta er ansi nett breyting. Áfangarnir sem ég er í eru ekki af minna taginu, t.a.m. STÆ 513 og 503 og verkefnaáfanginn TÖL 303, en það kemur þá vonandi í veg fyrir að mér leiðist eins og núna í nánustu framtíð.
Fyrir utan skólann mun ég síðan vera í tónskólanum eins og alltaf eitthvað að steikjast. Síðan ætlum við í Gettu Betur liðinu að taka nokkrar léttar æfingar til að geta kannski komist lengra en fyrstu umferð í næstu keppni. Fyrir utan það er maður síðan nettur í fjallgöngunum sem ég ætla án nokkurs efa að stunda í haust, þangað til að það verður ofur kalt. Meðframt fjallgöngunum er ég síðan búinn að ákveða íþróttina sem ég ætla að stunda í framtíðinni, þ.e. fyrir utan fótbolta sem er hvort eð er öm. Þessi íþrótt heitir, tada: klettaklifur, og er bara töff. Eina vandamálið með hana er aðstaða en til að iðka hana þarf ég víst að skreppa útí Öræfi sem er ekki jafn töff. En jæja, þetta er allt á byrjunarstigi, verð eflaust búinn að drepa mig eftir nokkra daga. Mamma var b.t.w. ekki ánægð með að heyra þessar fregnir ;].
En já, þar sem ég er núna búinn að missa mig í leiðindum ætla ég að færa mig yfir í eitthvað skemmtilegra: Á föstudaginn verður busadæmið hjá FAS, það verður mega nett. Mega nettasta dæmið verður þó um kvöldið, það verður án nokkurs efa óleiðinlegt. Seinasta helgi var líka fín, fyrir utan að ég var rúmliggjandi allan sunnudaginn. Ætla bara að vona að þetta sé ávísun á skemmtilegt haust eða e-ð.
En já, var sem sagt að fatta núna að það er skemmtilegra að gera ekki neitt en að blogga, þannig að ég er farinn að gera ekki neitt áfram.
np: "Electric Light Orchestra - Shangri-la", "Electric Light Orchestra - Heaven only knows", "The Turtles - Happy Together ;@" og eitthvað fleira.